Culture Moves Europe er ný áætlun Evrópusambandsins sem býður listamönnum, fagfólki í menningargeiranum og gestgjöfum í öllum löndum sem taka þátt í Creative Europe-áætluninni styrki. Þetta á við um aðila sem starfa á sviði arkitektúrs, menningararfs, hönnunar og tískuhönnunar, bókmenntaþýðinga, tónlistar, sviðslista og myndlistar.
Culture Moves Europe skiptist í tvo flokka:
- Hreyfanleiki einstaklinga – fyrir listamenn og fagfólk í menningargeiranum;
- Dvalarverkefni (residencies) – fyrir gestgjafa.
Úthlutunarlotan er opin gestgjöfum sem eru lögaðilar (t.d. félagasamtök, einkaaðilar, opinberar stofnanir, sjóðir o.s.frv.) í einhverju af Creative Europe-löndunum og starfa á sviði arkitektúrs, menningararfs, hönnunar og tískuhönnunar, bókmennta, tónlistar, sviðslista eða myndlistar.
Ferðastyrkur
Styrkurinn er ætlaður til að mæta kostnaði við að taka á móti erlendum listamönnum og fagfólki í menningargeiranum, sem og kostnaði vegna ferðalaga þeirra. Gestgjafinn sér um húsnæði fyrir þátttakendur.
Styrkur til gestgjafans
Greiðsla til gestgjafa: 50 evrur á dag fyrir hvern þátttakanda.
Stuðningur vegna aðgengis (ef við á): Föst upphæð – 375, 675 eða 1.200 evrur, háð lengd dvalarinnar – ætluð til að mæta mögulegum aukakostnaði vegna aðgengisþarfa þátttakandans.
Til hvers þátttakanda
Styrkurinn felur í sér ferðastyrk og dagpeninga fyrir listamennina og fagfólkið sem tekur þátt. Þetta er hluti af þeim styrk sem gestgjafinn fær greiddan. Ferðastyrkurinn fer eftir vegalengd og ferðamáta.
- Vegalengd undir 5.000 km: föst upphæð 400 evrur.
- Vegalengd 5.000 km eða meira: föst upphæð 800 evrur.
- Dagpeningar: 30 evrur á dag fyrir hvern listamann eða fagmann í menningargeiranum. Hækkun á styrk fyrir umhverfisvæna ferðamáta: 400 evrur
- Auka styrkur fyrir ferðalög frá fjarlægjum landsvæðum sem tilheyra Create Europe löndunum eða af mjög afskekktum svæðum innan Evrópu: 175 evrur
- Auka styrkur fyrir vegabréfsáritun: 120 evrur
- Aðgengisþarfir: 375 evrur, 675 evrur eða 1.200 evrur, allt eftir lengd dvalar.
- Auka styrkur fyrir fjölskyldur: 200 evrur
Hvernig á að sækja um
Gestgjafar þurfa að leggja fram tillögu að dvalartíma sem inniheldur markmið, væntanleg áhrif og lengd. Gestgjafar munu starfa sem leiðbeinendur fyrir listamenn og menningarstarfsfólk og ættu að veita þeim umhverfi, stuðning og búnað sem er aðlagaður að sérþekkingu þeirra svo þeir geti einbeitt sér að einstaklings- eða sameiginlegum verkefnum sínum.
Gestgjafar geta tekið á móti 1 til 5 alþjóðlegum listamönnum og menningarstarfsfólki sem allir verða að taka þátt í dvalarverkefninu á sömu dögum og í sama tíma.
Hvenær
Dvalartímanum er aðeins hægt að hrinda í framkvæmd á milli 12. apríl 2027 (fyrsta upphafsdagur) og 31. mars 2028 (síðasta lokadagur).
Hvernig á að sækja um
Stofnaðu aðgang á Goethe-umsóknarvefsíðunni (GAP).
Skilafrestur: 18. janúar 2027, kl. 23:59 CET.
Opportunity offered by: European Commission